top of page

Máni 60 ára


Í dag, 6. desember 2025 er hestamannafélagið Máni 60 ára en félagið var stofnað 6. desember 1965.


Úr tímaritinu Faxa 1. janúar 1966;

Hvatamenn að stofnun félagsins voru 40 áhugasamir hestamenn.

Fyrstu stjórn félagsins skipuðu: Hilmar Jónsson formaður, Birgir Scheving ritari, Maríus Sigurjónsson gjaldkeri og meðstjórnendur voru Valgeir Helgason og Þórður Guðmundsson.

Tilgangur félagsins var og er að efla og glæða almennan áhuga fyrir hestinum og hæfileikum hans og bæta hér aðstöðuna, svo að menn, sem hafa áhuga, geti eignast hér hest og fái tækifæri til að umgangast hann. Til þess að það megi takast, þarf félagið að eignast aðgang að landi og geta byggt þar hesthús.

Ýmislegt fleira mun þetta unga félag hafa áhuga stefnuskrá sinni.


Nú 60 árum seinna eru félagar okkar orðnir tæplega 400 og hér hefur byggst upp myndarlegt hverfi ásamt því að eiga stærðar reiðhöll, gott land undir beit og fína reiðvegi.

Til hamingju með daginn kæru Mánafélagar🥳


Kv. Stjórnin


Knaparnir og stofnfélagarnir Þórður Guðmundsson (t.v.) á hestinum Mána frá Stafholtsey og Guðmundur Elísson á Kára.

Hestamannafélagið Máni er nefnt í höfuðið á hestinum Mána sem var stjörnóttur og eins og sést myndaði stjarnan hálfmána.

 
 
 

Comments


© 2020 Hestamannafélagið Máni

bottom of page