Kennslufyrirkomulag í Reiðmanni I - 2 laus pláss

Þá er búið að ná kennslufyrirkomulaginu saman á stuttum tíma. Snorri Dal mun kenna fyrstu helgina þar sem Sindri var þegar búinn að ráðstafa október hjá sér. Nú eru komnir 12 knapar í hópinn og pláss fyrir tvo til viðbótar, þannig að ef þið vitið um einhverja áhugasama megið þið endilega benda þeim á námið.
Uppsetning kennslunnar í Reiðmanninum I á haustönn verður eftirfarandi:
MÁNI Í KEFLAVÍK
Reiðkennarar: Sindri Sigurðsson og Snorri Dal
9.-11. október – Snorri Dal
Kennslan fer fram í reiðhöllinni í Grindavík.
6.–8. nóvember – Sindri Sigurðsson (Mánagrund)
20.–22. nóvember – Sindri Sigurðsson (Mánagrund)
4.–6. desember – Sindri Sigurðsson (Mánagrund)
Bæði Snorri & Sindri eru mjög reynslumiklir knapar og reiðkennarar.
Þið sem eruð ekki enn búin að skrá ykkur inn í kerfið hvetjum við ykkurtil að gera það við fyrsta tækifæri og fylgja leiðbeiningunum sem þið fenguð sendar varðandi innskráningu. Ef þið lendið í vandræðum með að komast inn í kerfið má senda póst á helpdesk@lbhi.is.






Comments