top of page
Search


Karla og kvennatölt 2026 - úrslit
Karla og kvennatölt var haldið 17.apríl sl. Fín þátttaka var og gekk mótið vel. Í hléi gerðum við örlitla breytingu og settum við í gang hobbyhesta keppni í staðinn fyrir okkar árlegu lullkeppni. Mikið fjör var í stúkunni og vel mætt í súpuna. H.helgason styrkti mótið og þökkum við þeim kærlega fyrir. Úrslit: 2flokkur kvk: 1.sæti Helga Hildur & Rökkvi frá Litlalandi - 8.45 2.sæti Ragna Kristín & Bergrún frá Húsavík - 8.15 3.sæti Sigríður Pálína & Gjá frá Þingholti - 8.05 4.sæ
11 hours ago


Einkatímar hjá Hinriki Sigurðssyni
Hinrik Sigurðsson býður uppá einkatíma í vetur og verður sjötti tíminn þriðjudaginn 19. maí nk. Skráning er opin inná Sportabler og er tíminn á 9.500 kr. Skráningu lýkur á miðnætti 18. maí.
20 hours ago


Tiltektardagur
Þriðjudaginn 28.apríl ætlum við að taka til hendinni og tína rusl og hreinsa í umhverfi okkar milli kl.17 og 19. Pokar verða við reiðhöllina, gámur verður fyrir utan reiðhöllina og er félagsmönnum heimilt að henda almennu rusli í hann, þó er ekki leyfilegt að henda timbri eða byggingarefni. Grillaðar pylsur í reiðhöllinni eftir tínslu.
Apr 25


Æskan og Hesturinn
Æskan og hesturinn í Sörla 26. apríl Sýningin Æskan og hesturinn verður haldin sunnudaginn 26. apríl næstkomandi í nýrri og glæsilegri reiðhöll Sörla í Hafnarfirði. Þar koma fram efnilegustu hestamenn landsins og sýna afrakstur vetrarstarfsins og er óhætt að segja að sýningin sé hápunktur vetrarstarfsins hjá hinum ungu knöpum. Hópar ungra hestamanna frá öllum hestamannafélögunum á höfuðborgarsvæðinu; Fáki, Herði, Mána, Spretti, Sóta og Sörla sýna fjölbreytt atriði sem þeir ha
Apr 17


Karla- og kvennatölt Mána 2026
Hið árlega karla og kvennatölt Mána verður haldið 17.apríl nk. Skráning í reiðhöllinni miðvikudaginn 15.apríl milli kl. 18 og 19.30
Apr 14


Þriðja vetrarmót 2026 - úrslit
Síðasta vetrarmótið var haldið 9.apríl sl. og var mjög góð þátttaka. Ellert Skúlason ehf styrkti mótið og þökkum við þeim kærlega fyrir. Margir sem mættu bæði að keppa og horfa á þó svo að veðrið hafi verið að stríða okkur. Teymdir pollar: Þorgeir Liljar & Hrafn frá Vöðlum Andrea Lilja & Djörfung frá Oddstöðum Ríðandi pollar: Atlas Freyr & Jara frá Illugastöðum Sóllilja & Ás frá Læk 1 Svala Lind & Lexý frá Geysisholti Auður María & Sölvi frá Melabergi Kristófer Logi & Hermann
Apr 14
bottom of page


