top of page

Reglur reiðhallar Mána

Að sjálfsögðu þurfa notendur að vera félagsmenn og vera skuldlausir við félagið.

Hjálmaskylda er í reiðhöllinni og reykingar eru bannaðar!

ATH stefnt er að því að setja upp myndavélakerfi í húsinu 2026

  1. Allir þeir sem nota höllina þurfa að vera félagar í hestamannafélaginu Mána og vera skuldlausir við félagið.

  2. Knöpum er skylt að nota hjálma í reiðhöllinni , sýna kurteisi og tillitssemi og forðast óróa eða hávaða.

  3. Knöpum ber að hreinsa upp eftir hestana sína og eru verkfæri til þess staðsett í reiðsal.

  4. Látið vita áður en teymt er inn á völlinn. Farið á bak og af baki inná miðjum velli en ekki á reiðleiðum í útjaðri vallar.

  5. Fetgangur skal riðin á innri sporaslóð þegar aðrir knapar ríða á hraðari gangtegund á ytri sporaslóð.

  6. Hægri umferð gildir þegar knapar mætast.

  7. Knapi sem ríður bauga á hringnum, eða aðrar hringleiðir inn á velli veitir þeim forgang sem ríða allan völlinn á sporaslóð.

  8. Ekki má stöðva hestinn á ystu sporaslóð. Ef stöðva þarf  hestinn er best að gera slíkt inn á miðjum velli nema samkomulag sé um annað milli þeirra sem stunda æfingar á vellinum hverju sinni.

  9. Forðast skal að ríða þvert í veg fyrir aðra knapa.

  10. Fylgja ber hefðbundnum reiðleiðum á vellinum.

  11. Ekki skal æfa stökk þegar fleiri en 1 eru á vellinum nema með leyfi viðkomandi knapa.

  12. Hringtaumsvinnu skal eingöngu vinna í hringgerði. Knapi má einungis hafa einn hest inni hjá sér þegar vinna skal í hringgerði. Knapi skal forðast óþarfa hávaða t.d. með pískhljóðum sem gætu truflað aðra knapa.

  13. Ekki má hafa lausa hesta á vellinum né binda eða geyma hesta þar.

  14. Öll þjálfun á völlum sem félagið leggur félagsmönnum til er á eigin ábyrgð. Börn undir 16 ára aldri eru á ábyrgð foreldra á vellinum og í húsinu.

  15. Ætíð skal ganga frá búnaði, þjálfunarslám, keilum o.s.frv sé það notað við kennslu/þjálfun.

  16. Hundar eru stranglega bannaðir á vellinum og annars staðar í húsinu.

  17. Reykingar og notkun áfengis og/eða vímuefna er bönnuð í reiðhallarsalnum.


Stjórnin

  • Facebook
  • Twitter
  • LinkedIn
  • Instagram

© 2020 Hestamannafélagið Máni

bottom of page