Reiðmaðurinn I kennt hjá Mána haustið 2026/vorið 2027
- 2 days ago
- 1 min read

Reiðmaðurinn I í Keflavík
Sindri Sigurðsson, tamningamaður og menntaður reiðkennari frá Háskólanum á Hólum, mun kenna Reiðmanninn I hjá Hestamannafélaginu Mána í Keflavík í vetur.
Sindri útskrifaðist sem reiðkennari árið 2006 og hefur mikla og fjölbreytta reynslu af tamningum, þjálfun og reiðkennslu. Hann rekur starfsemi sína í Hafnarfirði og kennir reglulega bæði hér heima og erlendis. Í gegnum árin hefur hann byggt upp víðtæka reynslu af kennslu knapa á ólíkum stigum.
Auk kennslu og tamninga hefur Sindri bæði íþrótta- og gæðingadómararéttindi og býr því yfir góðri innsýn í keppni, þjálfun og markvissa uppbyggingu hests og knapa.
Hann hefur jafnframt komið að fræðslustarfi innan hestamennskunnar í um tvo áratugi og situr í fræðslunefnd Gæðingafélagsins. Sindri kemur því með öflugan faglegan bakgrunn, mikla reynslu og fjölbreytta þekkingu inn í námið og verður spennandi að fylgjast með starfinu í Keflavík í vetur.
Við hjá endurmenntun LbhÍ hlökkum mikið til samstarfsins við Sindra og Hestamannafélagið Mána og til að bjóða nemendur Reiðmannsins I velkomna í öflugt og spennandi námsár í Keflavík.
Hægt er að skrá sig í gegnum eftirfarandi tengil:






Comments