top of page

Kæru félagsmenn

ree

Nú fer hverfið að lifna almennilega við og því viljum við benda á nokkur atriði áður en starfið fer á fullt.

  1. Fjarlægja þarf hestakerrur og aðrar kerrur af götum hverfisins, annað hvort á kerrustæði eða inn á lóð.

  2. Almenn ökutæki og ferðavagna á ekki að geyma í hverfinu og eru eigendur beðnir að fjarlægja þau. Eigendur traktora eru beðnir að leggja þeim annars staðar en á götum hverfisins.

  3. Lausaganga hunda í hverfinu er óleyfileg.

  4. Sýnum tillitssemi og munið að keyra varlega í hverfinu, knaparnir eru misvanir og hross geta fælst.

  5. Munum að nota endurskinsmerki í svartasta skammdeginu.

  6. Við viljum benda knöpum á að kynna sér reglur reiðhallarinnar sem eru hér á síðunni og hanga einnig í höllinni. Reykingar eru bannaðar í höllinni.


Kurteisi og tillitsemi kosta ekkert.


Með kveðju

Stjórnin

 
 
 

Comments


© 2020 Hestamannafélagið Máni

bottom of page