Gjald fyrir reiðhallarlykla
Kæru félagsmenn
Stjórnin hefur ákveðið að tekið verði upp sérstakt árgjald fyrir aðgang að reiðhöll Mána frá og með áramótum 2026/2027.
Gjaldið verður 12.000 krónur á ári fyrir hvern lykil.
Öllum lyklum verður lokað 1.janúar 2027. Þeir sem vilja áfram hafa aðgang að höllinni þurfa að mæta í reiðhöllina 10.desember milli kl. 18 og 20 til að fá nýjan lykil og skila gamla. Eingöngu skuldlausir félagsmenn geta óskað eftir lykli.
Skila þarf inn lyklum sem ekki eru í notkun.
Umgengni í höllinni hefur því miður verið ábótavant umdanfarið. Við biðjum alla notendur að ganga vel um sameiginlega aðstöðu okkar og skilja snyrtilega við hana. Í framhaldinu verða settar upp myndavélar í höllinni.
Þökkum fyrir samstarfið og sérstaklega þeim sem hafa samviskusamlega mætt og tekið sínar vikur í höllinni til að halda aðstöðunni okkar í góðu horfi.
Áréttað skal að börn undir sextán ára aldri þurfa að vera í fylgd fullorðinna /forráðamanna og hafa þau aðgang gegnum áskrift foreldris.
Stjórn Hestamannafélagsins Mána






Comments