Aðalfundur Mána 2026

Aðalfundur Mána verður haldinn í reiðhöll Mána miðvikudaginn 25.nóvember kl.20.
Við hvetjum félagsmenn að mæta og taka þátt í kosningum stjórnar og nefnda ásamt lagabreytingum.
Framboð til stjórnar skal berast til stjórnar viku fyrir aðalfund.
Að venju verður boðið uppá kaffi og tertur í lok fundar.
Dagskrá:
1. Fundarsetning og tilnefning fundarstjóra
2. Skýrsla stjórnar og nefnda
3. Reikningar
4. Kosning stjórnar og nefnda
5. Lagabreytingar – tillögur að breytingum á 3 greinum í lögum félagsins:
1. 3.gr. laga um að hækka aldur félagsmanna til atkvæðaréttar á fundum úr 16 ára í 18 ára.
2. 14.gr. laga um að félaginu sé skylt að halda árshátíð, lagt til að hún verði alfarið felld út úr lögum félagsins.
3. 16.gr. laga um hvað verði um eignir félagsins ef það yrði lagt niður, núverandi orðalag er svohljóðandi og lagt til að fella þetta orðalag út: Fundurinn tekur ákvarðanir um ráðstöfun á eignum félagsins ef einhverjar eru.
Tillaga um breytingu, að þessi setning komi í stað þeirrar sem lagt er til að fella út:
Verði Hestamannafélagið Máni lagt niður skal afhenda eigur þess til Íþróttabandalags Reykjanesbæjar til varðveislu, en ef hliðstætt félag verður stofnað síðar skulu eignir þess afhentar hinu nýja félagi til afnota.
6. Ákvörðun félagsgjalda
7. Inntaka nýrra félaga
8. Viðurkenningar
9. Önnur mál
Hægt er að skoða lög félagsins á heimasíðu félagsins.
Stjórn Mána






Comments