top of page

Hrossablót Mána 2026

Það er komið að aðalpartíinu!

Í tilefni þess að félagið varð 60 ára í desember sl. þá var ákveðið að halda aðeins veglegra hrossablót þetta árið.

Villi og Stjáni munu að venju sjá um allir fái góða magafylli.

Jógvan Hansen mun veislustýra og sjá um að allt fari vel fram.

Hljómsveitin Alles Ókei? mun sjá um að koma okkur í tjúttgírinn.

Miðaverð er 10000kr fyrir mat og ball.

Hægt verður að kaupa sér miða á ballið, sá miði gildir frá kl.22. Verð á ballmiða er 4000kr. Ath! það verður einungis selt fyrirfram á viðburðinn og ballið, ekki við hurð.

Miðasala fer fram mánudaginn 2.febrúar milli kl.17 og 19 í reiðhöllinni.


 
 
 

Comments


© 2020 Hestamannafélagið Máni

bottom of page