top of page

Helgarnámskeið með Sigvalda Lárusi 13.-14. desember 2025


Þann 13.-14. desember ætlar Sigvaldi Lárus Guðmundsson að vera með helgarnámskeið. Í boði verða 40 mínútna einkatímar fyrir 10 nemendur, verð pr. nemanda 24500 kr.


Sigvaldi er menntaður reiðkennari frá Hólaskóla og hefur sinnt reiðkennslu bæði við Hólaskóla og Landbúnaðar háskóla Íslands. Nú starfar hann sem yfirreiðkennari hæfileikamótunar LH fyrir krakka. Árið 2022 var Sigvaldi valinn reiðkennari ársins hérlendis.


Skráning fer fram á sportabler og lýkur skráningu á miðnætti 11. desember nk.







 
 
 

Comments


© 2020 Hestamannafélagið Máni

bottom of page