top of page

Dagur sjálfboðaliðans

Alþjóðlegur dagur sjálfboðaliðans er í dag, 5. desember.

Hestamannafélagið Máni gengur alfarið fyrir vinnu sjálfboðaliða, svo sem stjórn og nefndarfólk, ásamt öllu því góða fólki sem gefur tíma sinn til ýmissa verkefna hverju sinni. Fyrir ykkar ómetanlega starf erum við ævinlega þakklát því án ykkar væri ekkert félag.

UMFÍ hvatti íþróttafélög í hverju íþróttahéraði fyrir sig til að tilnefna sjálboðaliða ársins og svo yrði valinn einn sjálfboðaliði úr hverju héraði. Hestamannafélagið Máni tilnefndi Jón Olsen sem sjálfboðaliða ársins 2025 og það er gaman að segja frá því að hann var valinn sjálfboðaliði ársins 2025 á Suðurnesjum.

Innilega til hamingju Jón og kærar þakkir fyrir þitt framlag til félagsins.


 
 
 

Comments


© 2020 Hestamannafélagið Máni

bottom of page