top of page

Vormolar frá stjórn

  • May 18
  • 3 min read

Veturinn hefur gengið sinn vanagang.

•Haldin hafa verið vetrarmót og karla- og kvennatöltið var á sínum stað.

•Bergey hefur séð um þjálfun krakkanna á mánudögum í vetur og Lárus og Sunna eru með æfingar fyrir þá sem stefna á úrtöku.

•Námskeiðin hafa verið mjög vel sótt, það mikið að stundum hefur verið fólk á biðlista.

•Nokkrir stuttir sameiginlegir reiðtúrar hafa verið farnir í vetur.

•Meistaradeildin var sýnd á skjánum í reiðhöllinni í vetur.

•Kvennareiðin er nýafstaðin, var þokkalega sótt og heppnaðist mjög vel.


Hrossablótið var haldið 21.febrúar. Var það haldið í Samkomuhúsinu í Sandgerði og var það virkilega vel heppnað. Tilefnið var að Máni varð 60 ára í desember sl. og blótið var því aðeins veglegra þetta árið. Maturinn að venju frábær sem og hljómsveit og veislustjórn. Við þökkum gefendum í happdrættið kærlega fyrir rausnarlegar gjafir.


Nokkrir knapar úr Mána hafa tekið þátt í Deildunum í vetur:

Í Meistaradeild Ungmenna voru þær:

Glódís Líf og Helena Rán Gunnarsdætur, Ásdís Elma Ágústsdóttir og Halldóra Rún Gísladóttir*

Vesturlandsdeildin: Glódís Líf Gunnarsdóttir

Samskipadeildin: Gunnar Eyjólfsson, Hrönn Ásmundsdóttir og Patricia Ladina Hobi*

Blue Lagoon mótaröðin: Halldóra Rún Gísladóttir, Ásdís Elma Ágústsdóttir og Tristan Dagur Þórisson.

Í Meistaradeild Líflands tók Jóhanna Margrét Snorradóttir þátt.

* Halldóra og Patricia kepptu fyrir Brimfaxa en eru í Mána


Hópur frá Mána fór með atriði á Æskan & Hesturinn í vor og stóðu sig afar vel og var atriðið mjög vel heppnað hjá þeim. Virkilega flottir og áhugasamir knapar sem við eigum.


Máni tók þátt í BAUN hátíðinni eins og áður. Gekk það mjög vel og við þökkum þeim sem komu og hjálpuðu okkur að teyma og lánuðu hross kærlega fyrir veitta aðstoð. Þessi viðburður er virkilega vinsæll og er mikið álag í stuttan tíma svo að það er alls ekki sjálfgefið að fá aðstoð við svo umfangsmikið verkefni sem þetta.


Hreinsunardagurinn okkar tókst vel. Eftir hreinsun voru grillaðar pylsur. Við þökkum kærlega þeim sem aðstoðuðu við að hreinsa til í umhverfinu okkar.


Stjórnin tók þá ákvörðun að selja gamla traktorinn og kaupa nýrri og öflugri traktor.

Formaðurinn hefur slóðadregið Grundina undanfarið, hæstánægður með gripinn.


Búið er að flikka uppá og mála andyri og salernin í reiðhöllinni. Eins voru settir gluggar á gaflinn á efri hæðina norðanmegin og miklu rusli hent af efri hæðinni.


Verið er að vinna í að leggja reiðveg meðfram Grundinni að vestanverðu. Vonandi verður hann langt kominn með haustinu.


Samningur við Suðurnesjabæ um lagningu reiðstíga fyrir félagið er í undirbúningi.


Við kynntum starfið fyrir Sveitarfélaginu Vogum og óskað hefur verið eftir samstarfssamningi við sveitarfélagið Voga.


Hestamennska var kynnt í Gerðaskóla fyrir 5-7 bekk í vetur. Til stendur að kynna í fleiri skólum næsta vetur.



Við þökkum umburðarlyndið við útleigunni á reiðhöllinni í byrjun maí.


Farin var kerruferð í Vogana sem heppnaðist virkilega vel og var vel sótt, framundan eru 3 aðrar kerruferðir á næstunni.


Reiðskólinn hefst í byrjun júní undir stjórn Elínar Söru.


Framundan hjá okkur eru nokkur verkefni þ.á.m. að endurgirða girðinguna á Mánagrund sem er meðfram Garðveginum, 3 kerruferðir, miðnæturreið, halda firmakeppni og úrtöku fyrir Landsmót ásamt ýmsum öðrum verkefnum.


Við þökkum öllu okkar besta fólki, sem eru sjálfboðaliðarnir okkar, fyrir þá vinnu sem þið hafið lagt af mörkum það sem af er vetri. Það eru þó enn nokkur verkefni sem við eigum eftir að græja og vonum við innilega að þið séuð ekki alveg búin að fá nóg af okkur.


Bestu kveðjur

Stjórn Mána













 
 
 

Comments


© 2020 Hestamannafélagið Máni

bottom of page