Fara beint í efnið
Hestamannafélagið Máni

Fatlaðir og reiðmennskan

Fatlaðir og reiðmennska er samstarf milli hestamannafélagsins Mána, Reykjanesbæjar, hæfingarstöðvarinnar og Miðstöðvar símenntunar á Suðurnesjum.

Í nokkur ár hefur hestamannafélagið boðið fötluðum að koma og kynnast hestamennsku og fer þetta fram á hraða hvers og eins. Þau fá að kemba, læra að leggja á, fara á hestbak og margt fl. Íslenski hesturinn er talinn hafa marga kosti sem nýtast vel við þjálfun fatlaðra, hreyfingar hestsins færast yfir í knapann sem situr hestinn og mjaðmagrind knapans hreyfist svipað og á sér stað í göngumynstri.

Hesturinn veitir knapanum um 90 til 100 göngusveiflur á mínútu og hafa erlendar rannsóknir sýnt að hreyfifærni knapans eru m.a. aukinn liðleiki í neðri hluta líkamans, betri höfuð og bolstjórn og jafnvægisviðbrögð.

Aðaláhersla er lögð á að allir hafi gaman.

Sú sem er í forsvari fyrir þessa tíma er Guðrún Halldóra (Dódó) Ólafsdóttir

gunnadora1@gmail.com