Reiðhöll opin · til 23:00
Reiðhöllin er opin á milli 08:15 til 23:00 alla daga vikunnar nema annað sé auglýst.
Frátekinn tími í reiðhöllinni:
- Alla laugardaga (nema ef námskeið eru, þá færast tímar til sunnudags eða fellur niður): Æskan kl. 10-12 - Rólegur tími fyrir konur kl. 12-13
- Mánudagar: Æskan námskeið kl. 17-21
- miðvikudaga: Kvenna Töltgrúppan kl. 18-19 - frá 5. febrúar
Minnum á að fólk hirði upp eftir hrossin sín og gangi almennt vel um höllina.
Reykingar eru bannaðar í reiðhöllinni.
Reglur reiðhallar Mána
Að sjálfsögðu þurfa notendur að vera félagsmenn og vera skuldlausir við félagið.
Hjálmaskylda er í reiðhöllinni og reykingar eru bannaðar!
ATH stefnt er að því að setja upp myndavélakerfi í húsinu 2026
- Allir þeir sem nota höllina þurfa að vera félagar í hestamannafélaginu Mána og vera skuldlausir við félagið.
- Knöpum er skylt að nota hjálma í reiðhöllinni, sýna kurteisi og tillitssemi og forðast óróa eða hávaða.
- Knöpum ber að hreinsa upp eftir hestana sína og eru verkfæri til þess staðsett í reiðsal.
- Látið vita áður en teymt er inn á völlinn. Farið á bak og af baki inn á miðjum velli en ekki á reiðleiðum í útjaðri vallar.
- Fetgangur skal riðin á innri sporaslóð þegar aðrir knapar ríða á hraðari gangtegund á ytri sporaslóð.
- Hægri umferð gildir þegar knapar mætast.
- Knapi sem ríður bauga á hringnum, eða aðrar hringleiðir inn á velli veitir þeim forgang sem ríða allan völlinn á sporaslóð.
- Ekki má stöðva hestinn á ystu sporaslóð. Ef stöðva þarf hestinn er best að gera slíkt inn á miðjum velli nema samkomulag sé um annað milli þeirra sem stunda æfingar á vellinum hverju sinni.
- Forðast skal að ríða þvert í veg fyrir aðra knapa.
- Fylgja ber hefðbundnum reiðleiðum á vellinum.
- Ekki skal æfa stökk þegar fleiri en 1 eru á vellinum nema með leyfi viðkomandi knapa.
- Hringtaumsvinnu skal eingöngu vinna í hringgerði. Knapi má einungis hafa einn hest inni hjá sér þegar vinna skal í hringgerði. Knapi skal forðast óþarfa hávaða t.d. með pískhljóðum sem gætu truflað aðra knapa.
- Ekki má hafa lausa hesta á vellinum né binda eða geyma hesta þar.
- Öll þjálfun á völlum sem félagið leggur félagsmönnum til er á eigin ábyrgð. Börn undir 16 ára aldri eru á ábyrgð foreldra á vellinum og í húsinu.
- Ætíð skal ganga frá búnaði, þjálfunarslám, keilum o.s.frv. sé það notað við kennslu/þjálfun.
- Hundar eru stranglega bannaðir á vellinum og annars staðar í húsinu.
- Reykingar og notkun áfengis og/eða vímuefna er bönnuð í reiðhallarsalnum.
Stjórnin
Staðsetning
Kort: © OpenStreetMap




