Search
Akstur bifhjóla, fjórhjóla og buggybíla á reiðvegum!
- May 19
- 1 min read

Að gefnu tilefni vill stjórn hestamannafélagsins Mána biðla til ökumanna vélknúinna ökutækja, bifhjóla, fjórhjóla og buggybíla að aka ekki á reiðvegum hestamanna.
Slík háttsemi getur valdið mjög alvarlegum slysum þar sem útreiðafólkið okkar er á öllum aldri, með mismikinn kjark og með mismikla reynslu, börn og fullorðnir ásamt því að hestar eru oft hræddir við slík ökutæki.
Virðing og tillitsemi kosta ekkert. Það vill enginn verða valdur að slysi.
Reiðvegir eru mannvirki sem hestamannafélagið hefur lagt heilmikið fé og vinnu í til lagningar og viðhalds. Því er mjög sárt að sjá vegina tætta upp af ökutækjum sem eiga ekkert erindi með að keyra þar um.
Virðingarfyllst
Stjórn hestamannafélagsins Mána







Comments