1. Almennt
Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands, kt. 670169–0499, Engjavegi 6, 104 Reykjavík (hér eftir „ÍSÍ“) hefur einsett sér að tryggja áreiðanleika og öryggi persónuupplýsinga sem ÍSÍ ber ábyrgð á og meðhöndlar í starfsemi sinni, í samræmi við gildandi lög og reglur um persónuvernd. ÍSÍ ber ábyrgð á vinnslu og meðferð persónuupplýsinga í starfseminni ýmist sem ábyrgðaraðili eða vinnsluaðili.
Persónuverndarstefnu þessari er ætlað að veita almenna fræðslu til einstaklinga um vinnslu persónuupplýsinga sem ÍSÍ hefur með höndum sem ábyrgðaraðili. ÍSÍ mun þó einnig leitast við að veita frekari fræðslu til einstaklinga eftir þörfum, meðal annars í formi sértækrar fræðslu vegna einstakra aðgerða og í tengslum við fyrirspurnir sem berast sambandinu um persónuvernd og persónuverndarstefnu þessa.
2. Um hverja safnar ÍSÍ persónuupplýsingum?
Meginreglur persónuréttar fela meðal annars í sér að persónuupplýsingar séu áreiðanlegar og uppfærðar og að unnið sé með þær samkvæmt skýrt tilgreindum og málefnalegum tilgangi. Einnig, að hófsemi sé gætt við skráningu persónuupplýsinga. ÍSÍ leggur áherslu á að meginreglur persónuréttar séu virtar og ávallt hafðar í huga þegar persónuupplýsingar eru meðhöndlaðar. Til þess að tryggja það veitir ÍSÍ starfsfólki sínu reglulega fræðslu og þjálfun á því sviði.
Starfsemi ÍSÍ er þess eðlis að það er óhjákvæmilegt að persónuupplýsingum sé safnað um mismunandi hópa einstaklinga. Sem dæmi um hópa einstaklinga sem ÍSÍ safnar persónuupplýsingum um eru: starfsumsækjendur og starfsmenn; tengiliðir viðskiptamanna, framkvæmdaraðila almenningsverkefna, birgja og annarra aðila sem ÍSÍ er í sambandi við; fagaðilar á heilbrigðissviði sem eru í fagteymum sérsambanda ÍSÍ; kærendur og kærðu hjá dómstól ÍSÍ; styrkþegar ýmissa styrkja sem ÍSÍ veitir; þátttakendur á námskeiðum á vegum ÍSÍ; iðkendur og keppendur sambandsaðila og ólympíuleikafarar.
3. Hvaða persónuupplýsingum er safnað?
ÍSÍ meðhöndlar meðal annars eftirfarandi tegundir persónuupplýsinga í starfsemi sinni:
- lýðfræðilegar upplýsingar um iðkendur, keppendur, ólympíufara, umsækjendur um styrki, nemendur í þjálfaranámi, starfsmenn og starfsumsækjendur;
- upplýsingar um keppnisárangur iðkenda og framvindu þjálfaranáms í tengslum við styrkveitingar;
- ljósmyndir af gestum á viðburðum, fræðslufundum og ráðstefnum ÍSÍ;
- upplýsingar tengdar ráðningarsambandi starfsmanna, meðal annars upplýsingar í ráðningarsamningi, upplýsingar vegna námskeiða, upplýsingar tengdar launaákvörðunum og greiðslu launa, m.a. heilsufarsupplýsingar tengdar orlofi og upplýsingar um stéttarfélagsaðild;
- upplýsingar tengdar ýmsum ráðum og nefndum ÍSÍ, til dæmis um kærendur og kærðu vegna mála sem eru til meðferðar hjá dómstól ÍSÍ;
- myndbandsupptökur úr öryggismyndavélakerfi í húsakynnum ÍSÍ; og
ÍSÍ aflar að mestu upplýsinga skráðum einstaklingum og frá sambandsaðilum. Þegar unnið er með viðkvæmar persónuupplýsingar eru gerðar viðeigandi tæknilegar og skipulagslegar öryggisráðstafanir til að tryggja öryggi upplýsinganna.
4. Á hvaða grundvelli safnar ÍSÍ persónuupplýsingum?
ÍSÍ vinnur persónuupplýsingar í þágu starfseminnar og er tilgangurinn meðal annars að tryggja lögbundið hlutverk, sem er að efla, samræma og skipuleggja íþróttastarfsemi í landinu. Einnig að þjónusta sambandsaðila, uppfylla skyldur sem fulltrúi Íslands í íþróttamálum erlendis og vegna hlutverks ÍSÍ sem ábyrgðaraðili vegna mála sem tengjast ólympíuhreyfingunni. Sem æðsti aðili frjálsrar íþróttstarfsemi í landinu safnar ÍSÍ persónuupplýsingum einkum á grundvelli lagaskyldu, lögmætra hagsmuna, samninga og samþykkis skráðra einstaklinga.
5. Varðveislutími
Meginhluti þeirra upplýsinga sem safnað er í starfsemi ÍSÍ eru geymdar ótímabundið enda hafa þær sögulegt gildi fyrir íþróttahreyfinguna. ÍSÍ telst jafnframt afhendingarskyldur aðili á grundvelli laga um opinber skjalasöfn og er þar af leiðandi óheimilt að ónýta eða farga nokkru skjali sem fellur undir gildissvið laganna, nema með heimild þjóðskjalavarðar. Gögn sem ekki falla undir gildissvið laganna eru einungis geymd í þann tíma sem nauðsynlegt er vegna tilgangs vinnslunnar sem um ræðir eða samkvæmt ákvæðum laga. Til dæmis eru gögn sem verða til við rafræna vöktun aldrei geymd lengur en í 30 daga.
6. Öryggi persónuupplýsinga
ÍSÍ leitast við að grípa til viðeigandi tæknilegra og skipulagslegra ráðstafana til að vernda persónuupplýsingar og tekur í því samhengi tillit til eðlis upplýsinganna sem um ræðir og umfangs. Þáttur í því er að stuðla að virkri öryggisvitund starfsmanna með reglulegri fræðslu og þjálfun. Verði öryggisbrestur sem hefur í för með sér áhættu fyrir einstaklinga mun ÍSÍ tilkynna slíkt án ótilhlýðilegrar tafar til Persónuverndar. Í ákveðnum tilfellum ber ÍSÍ einnig að tilkynna skráðum einstaklingum um slíka öryggisbresti. ÍSÍ hefur komið sér upp verkferlum til að bregðast við slíkum aðstæðum hratt og vel.
7. Miðlun persónuupplýsinga og notkun vinnsluaðila
ÍSÍ kann að miðla persónuupplýsingum til þriðju aðila vegna ýmissa ástæðna. Um þjónustuaðila getur verið að ræða, eins og upplýsingatækni- eða öryggisfyrirtæki, sem hefur aðgang að persónuupplýsingum sem ÍSÍ ber ábyrgð á í tengslum við veitingu þjónustu eða til að ljúka við verkefni.
Þegar vinnsluaðilar eru notaðir til að ljúka ákveðnu verki eða veita þjónustu tryggir ÍSÍ að aðeins sé veittur aðgangur að persónuupplýsingum sem nauðsynlegt er vegna verksins og að um ábyrgða vinnsluaðila sé að ræða sem tryggja öryggi upplýsinganna og virða reglur persónuverndar.
ÍSÍ kann einnig að vera skylt samkvæmt lögum að afhenda þriðja aðila, eins og stjórnvöldum, upplýsingar sem tengjar starfi íþróttahreyfingarinnar.
8. Réttindi skráðra einstaklinga
Einstaklingar eiga rétt á því að vita hvaða persónuupplýsingar ÍSÍ vinnur um þá og geta beint fyrirspurn um það til ÍSÍ í gegnum netfangið personuvernd@isi.is.
Í ákveðnum tilvikum eiga einstaklingar meðal annars rétt á að: óska eftir aðgangi að og afriti af persónuupplýsingum, að persónuupplýsingar séu leiðréttar og/eða að þeim sé eytt; að mótmæla vinnslu persónuupplýsinga og takmarka; og að draga til baka samþykki fyrir vinnslu. Réttindi skráðra einstaklinga kunna að vera háð takmörkunum sem leiða meðal annars af lögum eða hagsmunum annarra sem upplýsingarnar varða.
ÍSÍ mun verða við öllum beiðnum einstaklinga innan mánaðar frá viðtöku í gegnum framangreint netfang. Sé beiðni umfangsmikil eða flókin getur orðið töf á afgreiðslu. Tilkynnt er um slíkt og skýring gefin á töfinni. ÍSÍ mun krefjast auðkenningar áður en erindi eru afgreidd til að koma í veg fyrir að upplýsingar berist í hendur óviðkomandi aðila.
9. Fyrirspurnir og kvartanir til Persónuverndar
Öllum fyrirspurnum í tengslum við persónuvernd hjá ÍSÍ eða persónuverndarstefnu þessa skal beina í gegnum netfangið personuvernd@isi.is. Einnig er þó hægt að hafa samband í síma 514-4000.
Ef einstaklingur er ósáttur við vinnslu ÍSÍ á persónuupplýsingum og afgreiðslu erinda er hægt að kvarta til Persónuverndar og má finna upplýsingar um slíkt ferli inn á heimasíðu Persónuverndar: www.personuvernd.is.
10. Breytingar á persónuverndarstefnunni
Persónuverndarstefnan er endurskoðuð reglulega og kann því að taka breytingum. Breytingar á stefnunni öðlast gildi við birtingu á heimasíðu ÍSÍ: www.isi.is.
Þessi útgáfa var samþykkt af framkvæmdastjórn þann 16.05.2024.





