Siðareglur Hestamannafélagsins Mána (samþykktar á stjórnarfundi 15. maí 2024)
Hestamannafélagið Máni er íþrótta- og æskulýðsfélag. Markmið félagsins er að auka samhug og samheldni félagsmanna, stuðla að frjálsum og göfgandi skoðunum og veita félagsmönnum heilbrigt og þroskandi viðfangsefni í tómstundum þeirra. Markmiðið með setningu siðareglna félagsins er að stuðla að því að samskipti og vinnubrögð á vettvangi félagsins einkennist af virðingu, heilindum, sanngirni og réttlæti. Siðareglurnar leggja grunninn að þeirri starfsemi sem fram fer í félaginu.
Foreldri/forráðamaður
Hafðu ávallt hugfast að:
- Barnið þitt er í íþróttum vegna eigin ánægju en ekki til að gleðja þig.
- Hvetja barnið þitt til þátttöku í hestaíþróttum ekki þvinga það.
- Hrósa öllum iðkendum á meðan á æfingu, leik eða keppni stendur, ekki aðeins þínu barni.
- Hvetja börnin bæði þegar vel gengur og þegar á móti blæs. Ekki gera grín að barni ef mistök eiga sér stað.
- Vera börnum fyrirmynd í því að taka ósigri af æðruleysi, taka sigri hrokalaust og sýna andstæðingum kurteisi.
- Bera virðingu fyrir störfum þjálfarans/reiðkennarans, ekki reyna að hafa áhrif á störf hans meðan á leik eða keppni stendur.
- Líta á dómarann sem leiðbeinanda barna, ekki gagnrýna ákvarðanir hans.
- Læra að meta þátttöku sjálfboðaliða hjá félaginu því án þeirra hefði barnið þitt ekki möguleika að stunda æfingar og keppni hjá félaginu.
- Spyrja barnið hvort keppnin eða æfingin hafi verið skemmtileg eða spennandi, úrslitin eru ekki alltaf aðalatriðið.
- Taka því ávallt alvarlega ef barn þitt eða önnur börn leita til þín vegna vanlíðunar tengdri íþróttaiðkun sinni eða ef þú telur þig verða áskynja um vanlíðan hjá barni á æfingu eða í keppni.
Iðkandi (yngri) – þú ættir að:
- Gera alltaf þitt besta.
- Virða alltaf reglur og venjur varðandi heiðarleika í hestaíþróttum.
- Vera ávallt kurteis og koma fram við aðra eins og þú vilt að aðrir komi fram við þig.
- Taka þátt í hestaíþróttum á eigin forsendum en ekki vegna þess að foreldrar/forráðamenn þínir eða þjálfari vilja það.
- Sýna öllum iðkendum virðingu, jafnt samherjum sem mótherjum.
- Þræta ekki eða deila við dómarann.
- Forðast neikvætt tal eða niðurlægjandi köll um samherja, mótherja, dómara, þjálfara/reiðkennara, starfsmenn félagsins og sjálfboðaliða.
- Mæta á réttum tímum á æfingar, keppnir og aðra viðburði sem þú tekur þátt í á vegum félagsins.
- Bera virðingu fyrir félagsbúningi þínum og merki félagsins. Ef þú verður fyrir óásættanlegri hegðun af hendi þjálfara, starfsmanna, sjálfboðaliða eða annarra iðkenda skaltu láta einhvern fullorðinn vita.
Iðkandi (eldri) – þú ættir að:
- Gera alltaf þitt besta.
- Virða reglur og venjur varðandi heiðarleika í hestaíþróttum.
- Hafa heilbrigði ævinlega að leiðarljósi og ekki taka áhættu varðandi heilsu þína með því að neyta ólöglegra lyfja til að bæta árangur þinn.
- Virða alltaf ákvarðanir dómara og annarra starfsmanna.
- Bera virðingu fyrir hæfileikum og getu annarra og forðast neikvæð ummæli og skammir byggðar á kynferði, kynþætti, kynhneigð, stjórnmálaskoðunum eða trúarbrögðum.
- Vera heiðarlegur og opinn í samvinnu við þjálfara/reiðkennara og aðra sem styðja þig.
- Taka sjálfur alla ábyrgð á framförum þínum og þroska.
- Vera ávallt til fyrirmyndar varðandi framkomu, jafnt utan vallar sem innan, og hafa hugfast að þú ert fyrirmynd yngri iðkenda.
- Samþykkja aldrei eða sýna ógnandi eða ofbeldisfulla tilburði.
- Forðast náin samskipti við þjálfara/reiðkennara þinn.
- Bera virðingu fyrir félagsbúningi þínum og merki félagsins. Ef þú verður fyrir óásættanlegri hegðun af hendi þjálfara, starfsmanna, sjálfboðaliða eða annarra iðkenda skaltu láta einhvern fullorðinn vita.
Þjálfari/reiðkennari
- Komdu fram við iðkendur af tillitssemi, virtu þá sem einstaklinga og gættu trúnaðar gagnvart þeim.
- Sjáðu til þess að þjálfun og keppni sé við hæfi iðkenda með tilliti til aldurs, reynslu og hæfileika.
- Haltu á lofti heiðarleika innan hestaíþróttarinnar.
- Viðurkenndu og sýndu virðingu þeim ákvörðunum sem dómarar taka.
- Kenndu iðkendum að bera ábyrgð á eigin hegðun og framförum í hestaíþróttinni.
- Vertu jákvæður, réttlátur, umhyggjusamur og heiðarlegur gagnvart iðkendum þínum.
- Viðhafðu jákvæða og uppbyggjandi gagnrýni og taktu gagnrýni á sama hátt.
- Settu ávallt á oddinn öryggi, heilsu og heilbrigði iðkenda þinna og varastu að setja þá í þá aðstöðu sem ógnað gæti heilbrigði þeirra.
- Talaðu ávallt gegn notkun ólöglegra lyfja, tóbaks og áfengis og fræddu iðkendur um skaðsemi þeirra.
- Sýndu athygli og umhyggju þeim sem orðið hafa fyrir meiðslum og þeim sem leita til þín vegna andlegrar vanlíðunar af einhverju tagi.
- Ef grunur leikur á um alvarlegt einelti eða refsiverða hegðun af einhverju tagi skaltu beina slíkum málum í viðeigandi farveg innan félagsins.
- Leitaðu samstarfs við aðra þjálfara/reiðkennara og sérfræðinga þegar þess þarf og viðurkenndu rétt iðkandans til að leita ráða hjá öðrum þjálfurum/reiðkennurum.
- Samþykktu aldrei eða sýndu ógnandi eða ofbeldisfulla tilburði.
- Taktu aldrei að þér akstur iðkenda, nema með beinu leyfi foreldra/forráðamanna.
- Sinntu iðkendum á æfingum en þess utan skaltu halda þig í faglegri fjarlægð. Forðastu samskipti í gegnum síma og internetið nema til boðunar á æfingar og til upplýsingagjafar.
- Vertu meðvitaður um hlutverk þitt sem fyrirmynd, bæði utan vallar og innan, þar með talið á samkomum og viðburðum tengdum félaginu.
- Komdu fram við alla iðkendur á sama hátt, óháð kyni, kynþætti, kynhneigð, stjórnmálaskoðunum eða trúarbrögðum.
- Notfærðu þér aldrei aðstöðu þína sem þjálfari/reiðkennari til að uppfylla eigin metnað á kostnað iðkandans.
- Hafðu ávallt í huga að þú ert að byggja upp fólk, bæði líkamlega og andlega.
- Ekki þiggja persónulegar gjafir frá einstökum iðkendum eða fjölskyldum þeirra. Náið samneyti við iðkendur eða hvers konar kynferðisleg áreitni eru ekki liðin og varðar brottrekstur.
Sjálfboðaliði
- Stattu vörð um markmið og gildi Hestamannafélagsins Mána og sjáðu til þess að þau séu í heiðri höfð í starfsemi félagsins.
- Hafðu ávallt í huga að í Mána er verið að byggja upp fólk.
- Komdu fram við félagsmenn, iðkendur, foreldra þeirra, þjálfara/reiðkennara, starfsmenn og aðra sjálfboðaliða sem jafningja, óháð kynferði, kynhneigð, trúarbrögðum og stjórnmálaskoðunum.
- Hafðu lýðræðisleg vinnubrögð í heiðri.
- Vertu ávallt til fyrirmyndar í framkomu og hegðun, bæði innan félags og utan.
- Taktu alvarlega þá ábyrgð sem þú berð gagnvart félaginu og iðkendum á þess vegum.
- Notfærðu þér aldrei stöðu þína hjá Mána til eigin framdráttar á kostnað félagsins.
- Viðhafðu jákvæða og uppbyggjandi gagnrýni og taktu gagnrýni á sama hátt.
Stjórnarmaður / starfsmaður
Virtu sömu reglur og sjálfboðaliðar, en auk þess skalt þú:
- Sjá til þess að félagsmenn séu upplýstir um starfsemi félagsins.
- Stuðla að þátttöku félagsmanna í ákvarðanatöku eins og kostur er.
- Reka félagið ávallt í samræmi við lög og góða reikningsskilavenju.
Siðareglur Hestamannafélagsins Mána (samþykkt á stjórnarfundi 15. október 2024)
- Komdu fram af fullkomnum heilindum og háttvísi gagnvart sjálfum þér og öðrum.
- Gættu trúnaðar og þagmælsku í störfum þínum en þó innan takmarkana lögboðinnar tilkynningarskyldu.
- Misnotaðu ekki valdastöðu þína eða hvers konar yfirburði sem þú kannt að hafa yfir öðrum.
- Gættu jafnræðis og varastu að misbjóða virðingu einstaklinga eða hópa t.d. hvað varðar kynþátt, þjóðernisuppruna, trú, lífsskoðun, fötlun, félagslega aðstöðu, aldur, kynhneigð, kynvitund, kyneinkenni eða kyntjáningu á öllum sviðum samfélagsins.
- Taktu aldrei, hvort heldur sem er með beinum eða óbeinum hætti þátt í veðmálum, fjárhættuspilum, happdrætti og þess háttar viðburðum eða viðskiptum í tengslum við íþróttaviðburði sem þú getur haft áhrif á.
- Þiggðu hvorki gjafir eða hlunnindi sem geta leitt til þess að rýra trúverðugleika, sjálfstæði eða hlutleysi þitt.



