top of page

Undirbúningsnámskeið fyrir úrtöku og Landsmót

  • 13 minutes ago
  • 1 min read

Kennarar: Lárus Sindri Lárusson og Sunna Sigríður Guðmundsdóttir.


Laugardaginn 7. mars nk. hefst undirbúningsnámskeið fyrir þau börn, unglinga og ungmenni sem stefna á að taka þátt í úrtöku fyrir Landsmót.

Lagt er upp með að tímar verða á hálfs mánaðar fresti fram að úrtöku Mána sem fram fer í byrjun júní.

Þeir sem komast svo inn á Landsmót fá tíma fram að Landsmóti ef áhugi er fyrir því.

Kennsla verður með fjölbreyttu sniði, einkatímar í reiðhöll, einkatímar á keppnisvelli og reiðtúrar með kennurum. Einnig fá þáttakendur sendar viðeigandi upplýsingar og fræðsluefni um reglur og framkvæmd gæðingakeppi.


Skráning fer fram á sportabler.

Verð: 30.500kr


Ath! Þetta er verð með 50% niðurgreiðslu frá Mána, því er ekki er hægt að nýta afsláttarkóða eða fá endurgreitt eins og með önnur námskeið.


 
 
 

Comments


© 2020 Hestamannafélagið Máni

bottom of page