top of page

Hestaþing Mána og Brimfaxa 2026 - úrslit

  • 13 hours ago
  • 4 min read

Hestaþing Mána og Brimfaxa sem jafnframt var úrtaka fyrir Landsmót 2026 fór fram þriðjudagskvöldið 9.júní sl.

Máni á rétt á að senda 4 fulltrúa á Landsmót og Brimfaxi 2 fulltrúa.

Mótið fór vel fram í fínasta veðri og sáust himinháar tölur á lofti, hestar og knapar greinilega í sumarskapi.


Jóhanna Margrét og Frontur frá Finnastöðum voru í feikna stuði og hlutu einkunina 9.02 sem er ein sú allra hæsta einkunn sem gefin hefur verið í forkeppni í A-flokki. Á eftir henni komu Gunnar Eyjólfsson og Kristall frá Litlalandi með 8.47, Emma Thorlacius og Skjór frá Skör með 8.29 og Sigvaldi Lárus Guðmundsson á Haka frá Vöðlum með 8.27.


Jóhanna Margrét var einnig efst í B-flokki með Útherja frá Blesastöðum með 8.82 og á eftir henni systkini hennar þau Signý Sól á Bárði frá Litla-Dal með 8.72 og Ásmundur Ernir á Röst frá Litlalandi með 8.57 ásamt Lárusi Sindra á Kafteini frá Skúfslæk með 8.50.


Í B-flokk áhugamanna mættu mæðgurnar Jóhanna og Jóhanna Perla og tryggðu sér miða á Landsmót með einkunnirnar 8.48 og 8.38.


Í Barnaflokki urðu efst eftir forkeppni Snædís Huld og Njörður frá Vöðlum, í öðru sæti urðu Eyvör Edda og Aðall frá Miðkoti og á eftir henni þær Freyja Rós á Pegasus frá Dísarstöðum 2 og Júlía Rós á Sokku frá Garðsá. Úrslitin vann Freyja Rós, í öðru sæti varð Snædís og Eyvör í því þriðja.


Eftir forkeppni í unglingaflokki var Júlíana efst á hestinum Krafti frá Hlemmiskeiði 3, í öðru sæti varð Elija á Sváfni frá Miðsitju og eftir henni Tristan Dagur á Andrá frá Ási 2. Elija vann síðan úrslitin og á eftir henni kom Júlíana og síðan Tristan í því þriðja.


Í forkeppni í B-flokki Ungmennaflokks varð Glódís Líf á Kvartett frá Stóra-Ási efst, þá varð Helena Rán á Goða frá Ketilsstöðum í öðru sæti, Lilja Rós og Safír - frá Brimfaxa - í þriðja sæti, Margeir Máni og Fjóla í því fjórða, Díana Ösp og Munda - frá Brimfaxa - í fimmta og í því sjötta Ásdís Elma og Dimmblá. Í úrslitum reið Helena Rán uppfyrir Glódísi þar sem hún fékk feikna háa einkunn fyrir glæsisýningu á Goða, Glódís varð í öðru sæti, Lilja Rós í þriðja og Margeir Máni í því fjórða.


Í A-flokki ungmenna var Glódís Líf á Hallsteini frá Þjóðólfshaga eini keppandinn og fékk hún fína einkunn.


Stjórn og mótanefnd Mána og Brimfaxa þakka fyrir gott mót og óskum keppendum okkar góðs gengis á Landsmóti á Hólum.


Myndir og heildarúrslit má sjá hér fyrir neðan


Sóllija og Ás
Sóllija og Ás
Glódís og Hallsteinn
Glódís og Hallsteinn

Jóhanna Perla og Jóhanna
Jóhanna Perla og Jóhanna
Barnaflokkurinn - Freyja, Snædís, Eyvör og Júlía
Barnaflokkurinn - Freyja, Snædís, Eyvör og Júlía
Unglingaflokkurinn - Elija, Júlíana og Tristan
Unglingaflokkurinn - Elija, Júlíana og Tristan
B-flokkur ungmenna - Helena, Glódís, Lilja og Margeir Máni
B-flokkur ungmenna - Helena, Glódís, Lilja og Margeir Máni

Úrslit úr fyrri umferð

Ríðandi pollar:

Sóllija Aronsdóttir og Ás

A flokkur




Gæðingaflokkur 1




Forkeppni




Sæti

Hross

Knapi

Aðildarfélag eiganda

Einkunn

1

Kristall frá Litlalandi Ásahreppi

Gunnar Eyjólfsson

Máni

8,47

2

Skjór frá Skör

Emma Thorlacius

Máni

8,29

3

Haki frá Vöðlum

Sigvaldi Lárus Guðmundsson

Máni

8,27

4

Frontur frá Finnastöðum

Jóhanna Margrét Snorradóttir

Máni

0,00

B flokkur




Gæðingaflokkur 1




Forkeppni




Sæti

Hross

Knapi

Aðildarfélag eiganda

Einkunn

1

Útherji frá Blesastöðum 1A

Jóhanna Margrét Snorradóttir

Máni

8,82

2

Bárður frá Litla-Dal

Signý Sól Snorradóttir

Máni

8,72

3

Röst frá Litlalandi Ásahreppi

Ásmundur Ernir Snorrason

Máni

8,57

4

Kafteinn frá Skúfslæk

Lárus Sindri Lárusson

Máni

8,50

5

Steinar frá Skúfslæk

Lárus Sindri Lárusson

Máni

8,43

6

Kappi frá Sámsstöðum

Díana Ösp Káradóttir

Brimfaxi

8,34











Gæðingaflokkur 2




Sérstök forkeppni




Sæti

Hross

Knapi

Aðildarfélag eiganda

Einkunn

1

Maísól frá Lækjarbotnum

Jóhanna Harðardóttir

Máni

8,48

2

Von frá Keflavík

Jóhanna Perla Gísladóttir

Máni

8,38

Barnaflokkur gæðinga




Gæðingaflokkur 1




Forkeppni




Sæti

Knapi

Hross

Aðildarfélag knapa

Einkunn

1

Snædís Huld Þorgeirsdóttir

Njörður frá Vöðlum

Máni

8,29

2

Eyvör Edda Stefánsdóttir

Aðall frá Miðkoti

Máni

8,20

3

Freyja Rós Sveinsdóttir

Pegasus frá Dísarstöðum 2

Máni

7,54

4

Júlía Rós Aronsdóttir

Sokka frá Garðsá

Máni

0,00

A úrslit





Sæti

Knapi

Hross

Aðildarfélag knapa

Einkunn

1

Freyja Rós Sveinsdóttir

Pegasus frá Dísarstöðum 2

Máni

8,37

2

Snædís Huld Þorgeirsdóttir

Njörður frá Vöðlum

Máni

8,33

3

Eyvör Edda Stefánsdóttir

Aðall frá Miðkoti

Máni

8,30

Unglingaflokkur gæðinga




Gæðingaflokkur 1




Forkeppni




Sæti

Knapi

Hross

Aðildarfélag knapa

Einkunn

1

Júlíana Modzelewska

Kraftur frá Hlemmiskeiði 3

Máni

8,23

2

Elija Apanskaite

Sváfnir frá Miðsitju

Máni

8,16

3

Tristan Dagur Þórisson

Andrá frá Ási 2

Máni

8,13

4

Tristan Dagur Þórisson

Blesi frá Böðmóðsstöðum 2

Máni

7,99

5

Tristan Dagur Þórisson

Garún frá Þjóðólfshaga 1

Máni

7,46

A úrslit




Sæti

Knapi

Hross

Aðildarfélag knapa

Einkunn

1

Elija Apanskaite

Sváfnir frá Miðsitju

Máni

8,49

2

Júlíana Modzelewska

Kraftur frá Hlemmiskeiði 3

Máni

8,37

3

Tristan Dagur Þórisson

Andrá frá Ási 2

Máni

8,22

A flokkur ungmenna




Gæðingaflokkur 1




Forkeppni




Sæti

Knapi

Hross

Aðildarfélag knapa

Einkunn

1

Glódís Líf Gunnarsdóttir

Hallsteinn frá Þjóðólfshaga 1

Máni

8,39

B flokkur ungmenna




Gæðingaflokkur 1




Forkeppni




Sæti

Knapi

Hross

Aðildarfélag knapa

Einkunn

1

Glódís Líf Gunnarsdóttir

Kvartett frá Stóra-Ási

Máni

8,51

2

Helena Rán Gunnarsdóttir

Goði frá Ketilsstöðum

Máni

8,27

3

Lilja Rós Jónsdóttir

Safír frá Götu

Brimfaxi

8,26

4

Margeir Máni Þorgeirsson

Fjóla frá Vöðlum

Máni

8,23

5

Díana Ösp Káradóttir

Munda frá Stað

Brimfaxi

8,17

6

Ásdís Elma Ágústsdóttir

Dimmblá frá Vindási

Máni

8,09

A úrslit




Sæti

Knapi

Hross

Aðildarfélag knapa

Einkunn

1

Helena Rán Gunnarsdóttir

Goði frá Ketilsstöðum

Máni

8,83

2

Glódís Líf Gunnarsdóttir

Kvartett frá Stóra-Ási

Máni

8,48

3

Lilja Rós Jónsdóttir

Safír frá Götu

Brimfaxi

8,41

4

Margeir Máni Þorgeirsson

Fjóla frá Vöðlum

Máni

3,29

Úrslit úr seinni umferð

B flokkur ungmenna




Gæðingaflokkur 1




Forkeppni




Sæti

Knapi

Hross

Aðildarfélag knapa

Einkunn

1

Ásdís Elma Ágústsdóttir

Dimmblá frá Vindási

Máni

8,15

Barnaflokkur gæðinga




Gæðingaflokkur 1




Forkeppni




Sæti

Knapi

Hross

Aðildarfélag knapa

Einkunn

1

Júlía Rós Aronsdóttir

Sokka frá Garðsá

Máni

7,67

A flokkur




Gæðingaflokkur 1




Forkeppni




Sæti

Hross

Knapi

Aðildarfélag eiganda

Einkunn

1

Frontur frá Finnastöðum

Jóhanna Margrét Snorradóttir

Máni

9,02




 
 
 

Comments


© 2020 Hestamannafélagið Máni

bottom of page