Hestaþing Mána og Brimfaxa 2026 - úrtaka fyrir Landsmót
- 8 hours ago
- 1 min read

Hestaþing Mána og Brimfaxa - úrtaka fyrir Landsmót verður haldið að Mánagrund þriðjudaginn 9.júní 2026.
Máni á rétt á að senda 4 fulltrúa á Landsmót og Brimfaxi 2 fulltrúa.
Reiknað er með að byrja mótið um kl.17.30-18.00, fer eftir skráningu. Nánari dagskrá verður birt síðar.
Forkeppni, seinni umferð og úrslit verða riðin sama kvöld.
Skráning er hafin á Sportfeng en henni lýkur á miðnætti sunnudaginn 7.júní. kl.24.
Slóð á skráningarsíðu:
Skráningargjald í gæðingakeppnina er kr.7000 en kr.4500 fyrir börn og unglinga.
Gjald fyrir seinni umferð úrtöku kr.7000, skráð á staðnum strax eftir fyrri umferð.
Árangur úr fyrri umferð gildir til úrslita.
Boðið verður upp á eftirfarandi flokka:
Pollar teymdir - frítt (skráð á staðnum)
Pollagæðingakeppni - börn 9 ára og yngri skráningargjald 1500kr, skráð í Sportfeng
Barnaflokkur
Unglingaflokkur
B-flokkur ungmenna
A-flokkur ungmenna
A-flokkur opinn flokkur - gæðingaflokkur 1 í Sportfeng
A-flokkur áhugamanna - gæðingaflokkur 2 í Sportfeng (tölt, brokk og skeið)
B-flokkur opinn flokkur - gæðingaflokkur 1 í Sportfeng
B-flokkur áhugamanna - gæðingaflokkur 2 í Sportfeng (hægt tölt, brokk og yfirferðar tölt)
Ef greiðsla hefur ekki borist þá er keppandi ekki skráður á mótið.
Vert er að geta þess að félagsmenn þurfa að
vera skuldlausir við félagið sitt til að taka þátt í mótinu og hestar í A- og B-flokkum skulu vera í eigu viðeigandi félagsmanns/manna.
Hlökkum til að sjá ykkur
Stjórn Mána og Brimfaxa






Comments