top of page

Félagsgjöld Mána 2021

Kæru Mánafélagar


Greiðsluseðlar fyrir félagsgjöldum árið 2021 hafa verið sendir í heimabanka. Ekki eru sendir greiðsluseðlar í pósti.

Vinsamlegast athugið að ungmenni fædd 2003 greiða nú fullt félagsgjald.


Hjónagjald er 20.000kr


Einstaklingsgjald er 14.000kr fyrir félagsmenn fædda 2003-1954.


Til að geta tekið þátt í viðburðum á vegum félagsins svo sem námskeiðum, keppnum og öðrum uppákomum þarf viðkomandi að vera skuldlaus við félagið. Einnig þarf að vera skuldlaus til að mega nota reiðhöllina.


Þeir félagsmenn sem ekki hafa greitt árgjald fyrir 2020 verður vikið úr félaginu og verður ekki félagsmaður að nýju fyrr en hann hefur greitt allar eldri skuldir við félagið.


Skuldlausir félagar fá aðgang að Worldfeng sér að kostnaðarlausu. Til að virkja þann aðgang þarf að hafa tölvupóstfang skráð hjá gjaldkera. Hægt er að senda tölvupóstfang á gjaldkeri@mani.is ef tölvupóstföng hafa breyst nýlega eða þarf að bæta við nýjum.


Með von um góð viðbrögð.


Fh. Stjórnar


Elín Sara Færseth

Gjaldkeri Mána

79 views

Recent Posts

See All
bottom of page