Undirbúningsnámskeið fyrir úrtöku og Landsmót
- Mar 4
- 1 min read
Updated: Mar 6

Kennarar: Lárus Sindri Lárusson og Sunna Sigríður Guðmundsdóttir.
Laugardaginn 21. mars nk. hefst undirbúningsnámskeið fyrir þau börn, unglinga og ungmenni sem stefna á að taka þátt í úrtöku fyrir Landsmót.
Lagt er upp með að tímar verða á hálfs mánaðar fresti fram að úrtöku Mána sem fram fer í byrjun júní.
Þeir sem komast svo inn á Landsmót fá tíma fram að Landsmóti ef áhugi er fyrir því.
Kennsla verður með fjölbreyttu sniði, einkatímar í reiðhöll, einkatímar á keppnisvelli og reiðtúrar með kennurum. Einnig fá þáttakendur sendar viðeigandi upplýsingar og fræðsluefni um reglur og framkvæmd gæðingakeppi.
Skráning fer fram á sportabler.
Verð: 30.500kr
Ath! Þetta er verð með 50% niðurgreiðslu frá Mána, því er ekki er hægt að nýta afsláttarkóða eða fá endurgreitt eins og með önnur námskeið.






Comments