Fara beint í efnið
Hestamannafélagið Máni

Hestaþing Mána og Brimfaxa 2026 - úrslit

Hestaþing Mána og Brimfaxa sem jafnframt var úrtaka fyrir Landsmót 2026 fór fram þriðjudagskvöldið 9.júní sl.

Máni á rétt á að senda 4 fulltrúa á Landsmót og Brimfaxi 2 fulltrúa.

Mótið fór vel fram í fínasta veðri og sáust himinháar tölur á lofti, hestar og knapar greinilega í sumarskapi.

Jóhanna Margrét og Frontur frá Finnastöðum voru í feikna stuði og hlutu einkunina 9.02 sem er ein sú allra hæsta einkunn sem gefin hefur verið í forkeppni í A-flokki. Á eftir henni komu Gunnar Eyjólfsson og Kristall frá Litlalandi með 8.47, Emma Thorlacius og Skjór frá Skör með 8.29 og Sigvaldi Lárus Guðmundsson á Haka frá Vöðlum með 8.27.

Jóhanna Margrét var einnig efst í B-flokki með Útherja frá Blesastöðum með 8.82 og á eftir henni systkini hennar þau Signý Sól á Bárði frá Litla-Dal með 8.72 og Ásmundur Ernir á Röst frá Litlalandi með 8.57 ásamt Lárusi Sindra á Kafteini frá Skúfslæk með 8.50.

Í B-flokk áhugamanna mættu mæðgurnar Jóhanna og Jóhanna Perla og tryggðu sér miða á Landsmót með einkunnirnar 8.48 og 8.38.

Í Barnaflokki urðu efst eftir forkeppni Snædís Huld og Njörður frá Vöðlum, í öðru sæti urðu Eyvör Edda og Aðall frá Miðkoti og á eftir henni þær Freyja Rós á Pegasus frá Dísarstöðum 2 og Júlía Rós á Sokku frá Garðsá. Úrslitin vann Freyja Rós, í öðru sæti varð Snædís og Eyvör í því þriðja.

Eftir forkeppni í unglingaflokki var Júlíana efst á hestinum Krafti frá Hlemmiskeiði 3, í öðru sæti varð Elija á Sváfni frá Miðsitju og eftir henni Tristan Dagur á Andrá frá Ási 2. Elija vann síðan úrslitin og á eftir henni kom Júlíana og síðan Tristan í því þriðja.

Í forkeppni í B-flokki Ungmennaflokks varð Glódís Líf á Kvartett frá Stóra-Ási efst, þá varð Helena Rán á Goða frá Ketilsstöðum í öðru sæti, Lilja Rós og Safír - frá Brimfaxa - í þriðja sæti, Margeir Máni og Fjóla í því fjórða, Díana Ösp og Munda - frá Brimfaxa - í fimmta og í því sjötta Ásdís Elma og Dimmblá. Í úrslitum reið Helena Rán uppfyrir Glódísi þar sem hún fékk feikna háa einkunn fyrir glæsisýningu á Goða, Glódís varð í öðru sæti, Lilja Rós í þriðja og Margeir Máni í því fjórða.

Í A-flokki ungmenna var Glódís Líf á Hallsteini frá Þjóðólfshaga eini keppandinn og fékk hún fína einkunn.

Stjórn og mótanefnd Mána og Brimfaxa þakka fyrir gott mót og óskum keppendum okkar góðs gengis á Landsmóti á Hólum.

Myndir og heildarúrslit má sjá hér fyrir neðan

Sóllija og Ás
Glódís og Hallsteinn
Jóhanna Perla og Jóhanna
Barnaflokkurinn - Freyja, Snædís, Eyvör og Júlía
Unglingaflokkurinn - Elija, Júlíana og Tristan
B-flokkur ungmenna - Helena, Glódís, Lilja og Margeir Máni

Úrslit úr fyrri umferð

Ríðandi pollar:

Sóllija Aronsdóttir og Ás

A flokkur · Gæðingaflokkur 1 · Forkeppni

Sæti · Hross · Knapi · Aðildarfélag eiganda · Einkunn

  1. 1
    Kristall frá Litlalandi ÁsahreppiGunnar EyjólfssonMáni
    8,47
  2. 2
    Skjór frá SkörEmma ThorlaciusMáni
    8,29
  3. 3
    Haki frá VöðlumSigvaldi Lárus GuðmundssonMáni
    8,27
  1. 4
    Frontur frá FinnastöðumJóhanna Margrét SnorradóttirMáni
    0,00

B flokkur · Gæðingaflokkur 1 · Forkeppni

Sæti · Hross · Knapi · Aðildarfélag eiganda · Einkunn

  1. 1
    Útherji frá Blesastöðum 1AJóhanna Margrét SnorradóttirMáni
    8,82
  2. 2
    Bárður frá Litla-DalSigný Sól SnorradóttirMáni
    8,72
  3. 3
    Röst frá Litlalandi ÁsahreppiÁsmundur Ernir SnorrasonMáni
    8,57
  1. 4
    Kafteinn frá SkúfslækLárus Sindri LárussonMáni
    8,50
  2. 5
    Steinar frá SkúfslækLárus Sindri LárussonMáni
    8,43
  3. 6
    Kappi frá SámsstöðumDíana Ösp KáradóttirBrimfaxi
    8,34

Gæðingaflokkur 2 · Sérstök forkeppni

Sæti · Hross · Knapi · Aðildarfélag eiganda · Einkunn

  1. 1
    Maísól frá LækjarbotnumJóhanna HarðardóttirMáni
    8,48
  2. 2
    Von frá KeflavíkJóhanna Perla GísladóttirMáni
    8,38

Barnaflokkur gæðinga · Gæðingaflokkur 1 · Forkeppni

Sæti · Knapi · Hross · Aðildarfélag knapa · Einkunn

  1. 1
    Snædís Huld ÞorgeirsdóttirNjörður frá VöðlumMáni
    8,29
  2. 2
    Eyvör Edda StefánsdóttirAðall frá MiðkotiMáni
    8,20
  3. 3
    Freyja Rós SveinsdóttirPegasus frá Dísarstöðum 2Máni
    7,54
  1. 4
    Júlía Rós AronsdóttirSokka frá GarðsáMáni
    0,00

A úrslit

Sæti · Knapi · Hross · Aðildarfélag knapa · Einkunn

  1. 1
    Freyja Rós SveinsdóttirPegasus frá Dísarstöðum 2Máni
    8,37
  2. 2
    Snædís Huld ÞorgeirsdóttirNjörður frá VöðlumMáni
    8,33
  3. 3
    Eyvör Edda StefánsdóttirAðall frá MiðkotiMáni
    8,30

Unglingaflokkur gæðinga · Gæðingaflokkur 1 · Forkeppni

Sæti · Knapi · Hross · Aðildarfélag knapa · Einkunn

  1. 1
    Júlíana ModzelewskaKraftur frá Hlemmiskeiði 3Máni
    8,23
  2. 2
    Elija ApanskaiteSváfnir frá MiðsitjuMáni
    8,16
  3. 3
    Tristan Dagur ÞórissonAndrá frá Ási 2Máni
    8,13
  1. 4
    Tristan Dagur ÞórissonBlesi frá Böðmóðsstöðum 2Máni
    7,99
  2. 5
    Tristan Dagur ÞórissonGarún frá Þjóðólfshaga 1Máni
    7,46

A úrslit

Sæti · Knapi · Hross · Aðildarfélag knapa · Einkunn

  1. 1
    Elija ApanskaiteSváfnir frá MiðsitjuMáni
    8,49
  2. 2
    Júlíana ModzelewskaKraftur frá Hlemmiskeiði 3Máni
    8,37
  3. 3
    Tristan Dagur ÞórissonAndrá frá Ási 2Máni
    8,22

A flokkur ungmenna · Gæðingaflokkur 1 · Forkeppni

Sæti · Knapi · Hross · Aðildarfélag knapa · Einkunn

  1. 1
    Glódís Líf GunnarsdóttirHallsteinn frá Þjóðólfshaga 1Máni
    8,39

B flokkur ungmenna · Gæðingaflokkur 1 · Forkeppni

Sæti · Knapi · Hross · Aðildarfélag knapa · Einkunn

  1. 1
    Glódís Líf GunnarsdóttirKvartett frá Stóra-ÁsiMáni
    8,51
  2. 2
    Helena Rán GunnarsdóttirGoði frá KetilsstöðumMáni
    8,27
  3. 3
    Lilja Rós JónsdóttirSafír frá GötuBrimfaxi
    8,26
  1. 4
    Margeir Máni ÞorgeirssonFjóla frá VöðlumMáni
    8,23
  2. 5
    Díana Ösp KáradóttirMunda frá StaðBrimfaxi
    8,17
  3. 6
    Ásdís Elma ÁgústsdóttirDimmblá frá VindásiMáni
    8,09

A úrslit

Sæti · Knapi · Hross · Aðildarfélag knapa · Einkunn

  1. 1
    Helena Rán GunnarsdóttirGoði frá KetilsstöðumMáni
    8,83
  2. 2
    Glódís Líf GunnarsdóttirKvartett frá Stóra-ÁsiMáni
    8,48
  3. 3
    Lilja Rós JónsdóttirSafír frá GötuBrimfaxi
    8,41
  1. 4
    Margeir Máni ÞorgeirssonFjóla frá VöðlumMáni
    3,29

Úrslit úr seinni umferð

B flokkur ungmenna · Gæðingaflokkur 1 · Forkeppni

Sæti · Knapi · Hross · Aðildarfélag knapa · Einkunn

  1. 1
    Ásdís Elma ÁgústsdóttirDimmblá frá VindásiMáni
    8,15

Barnaflokkur gæðinga · Gæðingaflokkur 1 · Forkeppni

Sæti · Knapi · Hross · Aðildarfélag knapa · Einkunn

  1. 1
    Júlía Rós AronsdóttirSokka frá GarðsáMáni
    7,67

A flokkur · Gæðingaflokkur 1 · Forkeppni

Sæti · Hross · Knapi · Aðildarfélag eiganda · Einkunn

  1. 1
    Frontur frá FinnastöðumJóhanna Margrét SnorradóttirMáni
    9,02