Firmakeppni Mána 2025
- Þóra Brynjarsdóttir
- May 9
- 1 min read
Updated: May 10
Firmakeppni Mána 2025 verður haldin
miðvikudaginn 14. maí og hefst keppnin kl.
18.30.
Við hvetjum Mánamenn til að taka þátt og
hafa gaman af enda hefur Firmakeppnin verið ein vinsælasta keppni sem haldin er hjá Mána og um að gera að vera með.
Keppt verður í eftirfarandi flokkum og í
þessari röð:
Pollaflokkur-teymingar
Pollaflokkur
B flokkur gæðinga
Barnaflokkur
Kvennaflokkur
Unglingaflokkur
Tamningaflokkur-hross f. 2020 og 2021
Ungmennaflokkur
Heldri menn og konur (50 ára og eldri)
Parareið ( má keppa í búningum)
A flokkur gæðinga
Aðeins skuldlausir félagsmenn eiga þátttökurétt, skráning er á staðnum og eru
engin skráningargjöld.
Í barna-, kvenna- og heldri mannaflokki
verður riðið hægt tölt og síðan yfirferðargangur.
A flokkur, riðið verður tölt, brokk og skeið
B flokkur, riðið verður hægt tölt, brokk og greitt tölt
Unglinga- og ungmennaflokkur, riðið verður hægt tölt, brokk og yfirferðargangur.
Tamningaflokkur, riðið verður eftir vilja dómara.
Parareið, flottasta parið valið eftir mati dómara
Verðlaunaafhending fer fram í sal
reiðhallarinnar að móti loknu og boðið
verður uppá veitingar.
Bestu kveðjur
Stjórn Mána
Recent Posts
See AllElín Sara Færseth mun sjá um Reiðskóla Mána sumarið 2025. Námskeiðin eru fyrir börn á aldrinum 3 til 12 ára Byrjendur I - fyrir börn sem...
Comments