Aðalfundur Mána verður haldinn í reiðhöll Mána miðvikudaginn 25.nóvember kl.20.
Við hvetjum félagsmenn að mæta og taka þátt í kosningum stjórnar og nefnda ásamt lagabreytingum.
Framboð til stjórnar skal berast til stjórnar viku fyrir aðalfund.
Að venju verður boðið uppá kaffi og tertur í lok fundar.
Dagskrá:
- Fundarsetning og tilnefning fundarstjóra
- Skýrsla stjórnar og nefnda
- Reikningar
- Kosning stjórnar og nefnda
- Lagabreytingar – tillögur að breytingum á 3 greinum í lögum félagsins:
- 3.gr. laga um að hækka aldur félagsmanna til atkvæðaréttar á fundum úr 16 ára í 18 ára.
- 14.gr. laga um að félaginu sé skylt að halda árshátíð, lagt til að hún verði alfarið felld út úr lögum félagsins.
- 16.gr. laga um hvað verði um eignir félagsins ef það yrði lagt niður, núverandi orðalag er svohljóðandi og lagt til að fella þetta orðalag út: Fundurinn tekur ákvarðanir um ráðstöfun á eignum félagsins ef einhverjar eru.
Tillaga um breytingu, að þessi setning komi í stað þeirrar sem lagt er til að fella út:
Verði Hestamannafélagið Máni lagt niður skal afhenda eigur þess til Íþróttabandalags Reykjanesbæjar til varðveislu, en ef hliðstætt félag verður stofnað síðar skulu eignir þess afhentar hinu nýja félagi til afnota.
- Ákvörðun félagsgjalda
- Inntaka nýrra félaga
- Viðurkenningar
- Önnur mál
Hægt er að skoða lög félagsins á heimasíðu félagsins.
Stjórn Mána


