|
Vaktir í Mánahöll Vika 2 Guðbergur Reynisson Vika 3 Haukur Aðalsteinsson Vika 4 Vilberg Skúlason Vika 5 Jóhann G Jónsson Vika 6 Óli G Axelsson Vika 7 Lárus Þórhallsson Vika 8 Guðmundur G Gunnarsson Vika 9 Snorri Ólason Vika 10 Bjarni Stefánsson Vika 11 Gunnar Pétur Róbertsson Vika 12 Þórir Ásmundsson Vika 13 Vika 14 Högni Sturluson Vika 15 Þorvaldur Þorvaldsson Vika 16 Borgar Jónsson Vika 17 Hlynur Kristjánsson Vika 18 Björn V Ellertsson Vika 19 Sigurður Kolbeinsson Vika 20 Böðvar Snorrason Vika 21 Margeir Þorgeirsson Vika 22 Sunna S Guðmundsdóttir Vika 23 Ólöf R Guðmundsdóttir Morgun opnanir skiptast milli tveggja manna Ólafur Ágústsson Jens Elísson Reiðhallarbygging á Mánagrund Bygging reiðhallar hefur gengið hraðar en nokkur þorði að vona Frá því í byrjun árs 2006 eða allt frá því Guðni Ágústsson þáverandi landbúnaðarráðherra veitti styrkjum til hestamannafélaga vegna reiðhallarbygginga ,hefur verið starfandi byggingarnefnd á vegum Mána með það að meginmarkmiði að koma upp reiðhöll á félagssvæði Mána. Leitað var að hagstæðustu leiðunum til þess að koma reiðhöll upp án þess að félagið myndi sligast undan kvöðinni. Með hjálp bæjarfélaganna á svæðinu og félagsmanna og eftir stíft fundahald um málið var ákveðið að fara af stað í byggingu hallarinnar en hafa í huga að stoppað yrði þegar peningar væru ekki til, Hafist var handa síðasta sumar við gröft á svæðinu og upp frá því hófust félagsmenn handa í sjálfboðavinnu við að reisa sökkul með tilheyrandi fótramentum og öðru sem svona framkvæmd fylgir. Svona stóru verki fylgja náttúrulega tafir vegna sumarfría erlendis og þess vegna töfðust teikningar og húsið sjálft um tæpa 2 mánuði, en áfram héldu félagsmenn og húsið skyldi upp fyrir miðjann febrúar, Í desember janúar og febrúar hafa svo íslensku veðrin verið að minna allharkalega á sig með dýpstu lægðum sem um getur og er með sanni hægt að segja að húsið sé orðið fokhelt eftir áganginn síðustu mánuði, en vegna veðurs hefur framkvæmdin tafist enn meir. Nú er komin upp sú staða að fyrirtækið Húsanes hefur boðist til að hjálpa til við bygginguna með mjög rausnarlegum hætti og höfum við því ákveðið að klára meira inní húsinu áður en húsið verður vígt, en félagar okkar í Húsanes hafa boðist til þess að fjármagna efni til byggingar aðstöðu inní húsinu til samkomusalar og annars sem til þarf vegna þess. Ég veit að menn eru orðnir spenntir fyrir nýju höllinni og vilja fara að komast þar inn sem fyrst, en vegna tafa í smíðum (sem eru þó ekki verulegar) og nýrra ákvarðana er ekki möguleiki á að opna fyrr en að minnsta kosti eftir 1 og hálfann til 2 mánuði. Ég vona að fólk sjái ástæðu þessarra tafa í réttu ljósi , þetta er ekki vegna þess að menn séu að gefast upp, vinna við höllina er í fullum gangi og mun bara eflast hér eftir þegar við (félagsmennirnir) getum farið að vinna meira inni í húsinu og við förum að sjá árangur. Við þetta tækifæri óska ég eftir fleiri sjálfboðaliðum til þess að vinna við húsið vegna þess að núna fer virkilega að vanta fleiri hendur til þess að vinna og reyna að koma húsinu í stand fyrr eða í enda mars. Ef þú vilt hjálpa okkur við verkefnið hafðu þá samband sem fyrst í síma 617-8925 og fáðu að vita hvað það er sem þú getur lagt af höndum hversu smátt sem það gæti orðið þá flýtir allt fyrir. f.h Byggingarnefndar Mána Guðbergur Reynisson |




