|
Mögnuð óvissuferð 2007
Við lögðum af stað frá Mánagrund kl 9:15 og var ferðinni haldið inn í Sandgerði. Við skoðuðum Fræðasetrið í Sandgerði og var þar margt skemmtilegt að sjá. Eftir fræðasetrið var ferðinni haldið í Reykjavík og stoppað í Egilshöll. Þar fór hópurinn á skauta. Það leyndust margir efnilegir listskautarar í hópnum og má þar helst nefna Hauk Aðalsteinsson. Hann sýndi afar fallega takta og tilburði. En við skulum ekkert fara nánar út í það. Eftir Egilshöllina var ferðinni haldið á Stokkseyri. Við fórum á Veiðisafnið. Þar var heill hellingur af uppstoppuðum dýrum. Gíraffi, Sebrahestur, Antilópur, Villisvín og margt fleira. Eftir Veiðisafnið var farið á nýtt safn á Draugasetrinu sem heitir Álfar, tröll og norðurljós. Þetta er virkilega skemmtilegt og flott safn og höfðu krakkarnir mjög gaman af þessu og fóru margar ferðir í gegn. Eftir Stokkseyri var ferðinni haldið austar. Við fórum í hestasundlaugina á Ási. Þar tók hann Jakob á móti okkur og sýndi okkur hvernig Þóroddur frá Þóroddstöðum tók nokkra sundspretti. Eftir sundið var svo haldið á bæinn Hvol. Þar tóku hjónin alveg glæsilega á móti hópnum og buðu krökkunum upp á ís og svala. Svo fór Þorvaldur í hnakkinn og sýndi okkur hinn magnaða hest Rökkva frá Hárlauksstöðum. Að lokum var farið í keiluhöllina og spiluð diskó keila. Þegar allir voru búnir að spila var haldið inn í veislusalinn og þar beið okkar pizzuveisla. Svo var ferðinni haldið heim og var hópurinn kominn til Keflavíkur aftur kl 20:30 Langur en alveg magnaður dagur. Ferðin gekk í alla staði vel enda þarna frábær og prúður hópur á ferð. Æskulýðsnefndin þakkar krökkunum afar skemmtilega ferð. Hérna eru myndir frá ferðinni. Myndirnar virðast ekki sjást á yfirlitinu en klikka þarf á hvern myndarramma og þá kemur myndin. Frábær óvissuferð 2006 Lagt var af stað frá félagsheimilinu kl 8:30 og var ferðinni haldið austur. Mikill spenningur var í krökkunum því að þetta var sannkölluð óvissuferð. Það fékk enginn að vita neitt fyrr en komið var á áfangastað. Það var mikið spáð og spekúlerað hvert væri verið að fara og sá Æskulýðsnefndin líka um það að rugla svolítið í þeim svo að enginn gæti fattað hvert væri verið að fara. |





