Félagspeysur
Þar sem stjórn Æskulýðsnefndar Mána er að hætta störfum eftir 3ja ára starf, langar okkur að gefa VIRKUM félagskrökkum flíspeysu merkta Mána.


Fjölskyldureiðtúr
Fjölskyldureiðtúrinn á vegum Æskulýðsdeildarinnar verður laugardaginn 12. maí.  Riðið verður í Leiruna, þar verður stoppað, farið í leiki og grillað.


ÓVISSUFERÐIN SUMARDAGINN FYRSTA
Jæja þá er komið að okkar frábæru óvissuferð og hefur skráningin gengið mjög vel.


Páskabingó --- Páskabingó
Okkar árlega páskabingó verður í félagsheimili Mána þriðjudaginn 3. apríl kl. 19:00. Verð á bingóspjaldi er 100 kr.  Einnig verður skráning í okkar frábæru óvissuferð.


ÓVISSUFERÐ --- ÓVISSUFERÐ
Skráning er hafin í okkar frábæru óvissuferð. Farið inn á æskulýðs bloggið og skráið ykkur þar eða hringið í síma 893 3088. Þeir sem ætla að vera með verða að vera búin að skrá sig fyrir mánudaginn 16. apríl, en farið verður í ferðina á sumardaginn fyrsta fimmtudaginn 19. apríl.


Vel heppnað páskabingó
Páskabingó Æskulýðsdeildar Mána var haldið þriðjudaginn 3. apríl.  Æskulýðsnefndin fékk öll páskaeggin frá okkar frábæra stuðningsmanni Stefáni Guðjónssyni Rekstrarstjóra Nettó & Kaskó.


K. Steinarsson töltmótið
Þá er hinu árlega og glæsilega K.Steinarsson töltmóti lokið.  Keppnin var hörð og mikil og margir hestar skráðir til leiks eða 47 hestar.


K. Steinarsson tölt mótið
K. Steinarsson tölt mótið byrjar kl 14:00 á laugardaginn 17. mars.


K. STEINARSSON MÓTIÐ
Skráning er hafin á hið glæsilega K. Steinarsson tölt mót sem haldið verður í reiðhöll Mána laugardaginn 17. mars.   
 


Sigurður Óli
Reiðnámskeiðið hjá Sigurði Óla fellur niður í dag, mánudag 26. febrúar, vegna veikinda.  Það gæti orðið tími seinna í vikunni en ef það næst ekki þá verður næsti tími næsta mánudag.


Árshátíð unglinga og ungmenna
Árshátíð unglinga og ungmenna var haldin í félagsheimili Mána föstudaginn 23. febrúar.


Leikjadagur sunnudaginn 25. febrúar
Leikjadagur verður haldinn í reiðhöllinni sunnudaginn 25. febrúar frá kl 16:30 - 18:30.


ÁRSHÁTÍÐ -- ÁRSHÁTÍÐ -- ÁRSHÁTÍÐ
Nú er loksins komið að því sem allir hafa beðið eftir.  Árshátíð unglinga og ungmenna í hmf Sóta, Sörla, Mána, Herði, Fáki, Andvara og Gusti verður haldin í samkomuhúsinu á Mánagrund í Reykjanesbæ föstudaginn 23 febrúar.


SKEMMTIKVÖLD - SKEMMTIKVÖLD
Æskulýðsnefnd Mána heldur skemmtikvöld fyrir börn á aldrinum 13 ára og yngri í félagsheimilinu fimmtudaginn 8. febrúar. frá kl 19:00 - 21:00.


Árshátíð
Æskulýðsnefnd Mána heldur sameiginlega árshátíð unglinga og ungmenna hestamannafélaganna Harðar, Fáks, Andvara, Sörla, Sóta og Mána.


Reiðnámskeið - Reiðnámskeið - Reiðnámskeið
Hinn magnaði Sigurður Óli verður með reiðnámskeið fyrir börn, unglinga og ungmenni í vetur. Skráning er hafin hjá Bryndísi í síma 893 3088 og hjá Begga í síma 825 0011.


Kynningarfundur æskulýðsdeildarinnar
Kynningarfundur æskulýðsdeildarinnar verður haldinn fimmtudaginn 1. febrúar kl 19:00 í félagsheimilinu.


Halló Mána krakkar ( 11.okt.06 )
Nú styttist óðum í nýtt vetrarstarf æskunnar og langar okkur í æskulýðsnefndinni að biðja ykkur um hugmyndir í nýja vetrardagskrá. Hvað fannst ykkur skemmtilegast við síðasta vetrarstarf og viljið gera aftur næsta vetur eða hvað fannst ykkur vanta.


Mána gallar ATH - ATH -ATH ATH (29. Ágúst)
Þar sem galli var í merkingu Mána gallanna (vindgallanna) eru þeir sem keyptu galla beðnir um að koma þeim í Merkiprent fyrir helgi því að Einar ætlar að endurmerkja alla gallana á mánudaginn næsta (4.sept).


Vetrarslútt Æskunnar
Vetrarslútt Æskulýðsdeilda Mána verður sunnudaginn 28. maí.


Glæsilegur árangur Mána krakka á Íþróttamóti Gusts
Fjórir krakkar frá Mána skelltu sér á Íþróttamót hjá Gusturum um helgina og stóðu sig frábærlega vel. Jóhanna Margrét var í fyrsta sæti í barnaflokki í fjórgang og í tölti á hestinum Djákna frá Feti.


Mána gallar
Ákveðið hefur verið af Æskulýðsnefnd Mána að gefa öllum virkum Mána krökkum vindgalla.  Gallarnir verða merktir og þurfum við því að fá stærð hvers barns mjög fljótlega.


Fjáröflunardagur Æskulýðsdeildarinnar
Laugardaginn 27. maí verður fjáröflunardagur Æskulýðsdeildarinnar.  Við ætlum að koma saman og tína rusl af girðingunni í kringum flugvöllinn og svo ætlar Flugmálastjórn að grilla handa okkur þegar við erum búin.


Camilla Reyjavíkurmeistari ungmenna í fjórgangi
Reykjavíkurmeistaramótinu lauk sl. sunnudag 14. maí. Systrunum Camillu og Viktoríu gekk mjög vel á mótinu og var Camilla Reyjavíkurmeistari Ungmenna í í fjórgangi á hestinum Sporði frá Höskuldsstöðum með eink. 7,23.


Vel heppnaður fjölskyldureiðtúr
Farið var í fjölskyldureiðtúr á vegum Æskulýðsdeildarinnar laugardaginn 13. maí.


Stórsýning hestamanna í Víðidal
Stórsýning hestamanna var haldin í reiðhöllinni í Víðidal helgina 5-6 maí.  Mána menn áttu 3 fulltrúa á sýningunni og var það að sjálfsögðu formaðurinn sjálfur Margeir Þorgeirsson og fulltrúar æskunnar voru þær Margét Lilja Margeirdóttir og Hafdís Hildur Gunnarsdóttir.


Fjölskyldureiðtúr
Fjölskyldureiðtúrinn á vegum Æskulýðsdeildarinnar verður laugardaginn 13. maí.


Góður árangur Mánakrakka á Líflandsmóti
Líflandsmót var haldið laugardaginn 22.apríl í reiðhöllinni í Víðidal.  8 Mánakrakkar tóku þátt í þessu móti með góðum árangri. Hér eru nöfn þeirra sem komust í úrslit:


Óvissuferð - ferðasaga
Óvissuferð - ferðasaga


ÓVISSUFERÐIN SUMARDAGINN FYRSTA
Jæja nú er komið að óvissuferðinni miklu. Það er engin smá skráning eða 41 börn, unglingar og ungmenni.


ÓVISSUFERÐIN MIKLA
ÞAÐ FER NÚ ALDEILIS AÐ STYTTAST Í HINA MIKLU OG FLOTTU ÓVISSUFERÐ ÆSKULÝÐSDEILDARINNAR. HÚN VERÐUR SUMARDAGINN FYRSTA EÐA 20. APRÍL.  ÞETTA VERÐUR ROSA SKEMMTILEG OG ÓDÝR FERÐ OG VERÐUR EITTHVAÐ FYRIR ALLA S.S FYRIR ALLA ALDURSHÓPA.


Vel heppnað páskabingó
Páskabingó Æskulýðsdeildar Mána var haldið þriðjudaginn 11. apríl.


PÁSKABINGÓ - PÁSKABINGÓ - PÁSKABINGÓ
Okkar árlega páskabingó verður í Félagsheimilinu þriðjudaginn 11. apríl kl. 19:30.


Árshátíð barna 9 - 12 ára
Æskulýðsnefnd Harðar Mosfellsbæ auglýsir sameiginlega árshátíð Hestamannafélaganna Hörður, Fákur, Andvari, Sörli, Sóti og Máni. Árshátíðin verður haldin föstudaginn 24. mars í Félagsheimilinu Harðarbóli kl 18 - 21.


Myndir frá árshátíðarmótinu
Það eru komnar inn myndir frá Árshátíðarmótinu 18. mars.


Æskan og hesturinn
Stórsýningin æskan og hesturinn var haldin um helgina 11 -12 mars. Sýningin heppnaðist mjög vel og átti Máni 24 börn á sýningunni. 14 börn tóku þátt í skrautsýningu og kallaði hópurinn sig James Bond.


K. Steinarsson mótið
Beggý, Gunnhildur, Nadía og Hanna glaðar með bikarana sína úr pollaflokkiÞá er flottasta mótið á Grundinni lokið. Mótið heppnaðist í alla staði mjög vel og var ekki hægt að heyra annað á fólki en að það hafi verið mjög ánægt með mótið.
Beggý, Gunnhildur, Nadía og Hanna glaðar með bikarana sína úr pollaflokki.
Það voru margir foreldrar sem komu til okkar í Æskulýðsnefndinni og þökkuðu okkur fyrir frábært mót.


K. Steinarsson mótið - Dagskrá
Mótið hefst kl. 15:00 og í þessari röð:


Leikjadagur sunnudaginn 26. febrúar
Sunnudaginn 26.febrúar var haldinn leikjadagur í reiðhöllinni. Það má með sanni segja að þetta hafi verið góður og skemmtilegur dagur.


K. Steinarsson mótið
Sunnudaginn 5. mars verður haldið polla, barna, unglinga og ungmenna töltmót í reiðhöllinni. 
Mótið er í boði K. Steinarsson ehf. og hefst kl. 15:00.


Fræðslufundur með Trausta Þór
Fræðslufundur með Trausta Þór verður haldinn í Félagsheimilinu fimmtudaginn 23. febrúar
       - pollar og börn eru frá kl 19:00 - 20:00
       - unglingar og ungmenni eru frá kl 20:00 - ??


Árshátíð barna, unglinga og ungmenna ( 13 ára og eldri )
Árshátíð fyrir 13 ára og eldri verður haldin í Fáki föstudaginn 24.febrúar.


Reiðnámskeið hjá Ella Sig
Vegna mikilla fyrirspurna höfum við fengið Ella Sig til að taka 3 - 4 námskeið á miðvikudagskvöldum.


Æskan og hesturinn
Kynningar fundur og skráning á Æskan og hesturinn verður í reiðhöllinni fimmtudaginn 9. febrúar kl 20:00.


Æskan og hesturinn - æfing
Æfing fyrir félagsatriðið verður miðvikudagskvöldið 15. febrúar kl. 20:00 í reiðhöllinni.


Idol partý unglinga og ungmenna
Idol partý unglinga og ungmenna var haldið í félagsheimilinu föstudaginn 27. janúar.


Skemmtikvöld polla og barna
Skemmtikvöld polla og barna var haldið fimmtudaginn 2.febrúar sl. í félagsheimili Mána. Það er alveg óhætt að segja að börnin kunna að skemmta sér og mætingin var verulega góð. Þarna mættu 25 börn frá eins árs upp í 13 ára.


Vetrarstarfið hafið
Jæja þá er vetrarstarfið hafið. Við byrjuðum vetrarstarfið á kynningarfundi mánudaginn 9.janúar sl. Fundurinn var mjög vel sóttur og viljum við þakka félagsmönnum góða mætingu.


Til baka