8.6.2010 23:23

Fjölskylduhátið og vetralok
Æskulýðsnefndin.
Fjölskylduhátíðin og vetralokin sem haldið var miðvikudaginn 02.06.2010 heppnaðist mjög vel og var mjög skemmtilegt og frábær mæting, 

Gaman var að sjá allan þennan fjölda bæði litla og stóra krakka ásamt foreldrum.

Ýmsir leikir voru í boði eins og t.d. fjársjóðsleit sem byrjað var á, frá félagsheimilinu.

Leiðin lá um Mánahvefið, stoppað var á nokkrum stöðum og tóku vættir á móti hópnum með ýmsum uppákomum, þar sem þau þurftu að leysa ýmsar þrautir til þess að að leysa þær úr álögum sem vonda Mardöll norn lagði á þær.

 

Þegar þrautirnar voru leystar þá gaf hver vættur hópnum vísbendingar til þessa að halda áfram leitinni að fjársjóðnum og gjafir sem þær settu í gjafakassann hennar vondu Mardallar nornar sem átti síðan fá að gjöf, svo að þau fengu kort og skóflu til þess að finna staðinn og grafa upp fjársjóðskistuna.

Þegar kistan fannst og var opnuð var hún full af súkkulaði sem gerði heldur betur lukku.

 

Síðan var farið upp í reiðhöll þar sem beið hópnum grillaðar pylsur, svali og því tilheyrandi.

Eftir pylsuveisluna var farið í ýmsa leiki þar á meðal annars í eggjaleik, stórfrískaleik, pokahlaup, kapphlaup og svo tvímennisleik.

Áður en krakkarnir fóru heim var þeim gefið nammipoki sem vakti mikla lukku og allir fóru ánægðir heim.

 

Æskulýðsnefndin vill þakka öllum þeim sem komu og tóku þátt í fjölskylduskemmtuninni kærlega fyrir.

 

Við þökkum kærlega fyrir veturinn.


Kveðja.

Guðleif og Birta.

 



Prenta Senda Deila

Til baka